Setning samráðsfundarNý skipulagslög taka gildi 1. janúar 2011 Vinna við nýja skipulagsreglugerð Samráð og samvinna við Samband íslenskra sveitarfélaga Skipulag hafsvæða Dagskrá þessa fundar
Setning samráðsfundar
Ný skipulagslög taka gildi 1. janúar 2011 Vinna við nýja skipulagsreglugerð Samráð og samvinna við Samband íslenskra sveitarfélaga Skipulag hafsvæða Dagskrá þessa fundar
Velkomin á samráðsfund sem nú er að hausti til vegna sveitarstjórnarkosninganna. Næsti fundur verður væntanlega í maí á næsta ári. Það sem ég ætla að nefna hér í byrjun er: Ný skipulagslög taka gildi 1. janúar 2011 – nefndin var skipuð 2002 og skilaði áliti 2006. Vinna við nýja skipulagsreglugerð – bréf til allra sveitarstjórna Samráð og samvinna við Samband íslenskra sveitarfélaga – námskeið fyrir nýja sveitarstjórnarmenn o. fl. Skipulag hafsvæða – mikið í umræðunni Dagskrá þessa fundar ‹#›
Ný skipulagslögHelstu nýmæli
Landsskipulagsstefna Lýsing skipulagsáætlana Breytt svæðisskipulag Staðfesting aðal- og svæðisskipulagsáætlana Hverfisskipulag Breytt afgreiðsla deiliskipulags
Landsskipulagsstefna Samþætting áætlana opinberra aðila um samgöngur, byggðamál, náttúruvernd, orkunýtingu og aðra málaflokka sem varða landnotkun. Bætt við ákvæði um að telji sveitarstjórn að ekki beri að taka mið af samþykktri landsskipulagsstefnu við gerð skipulagsáætlana geri hún rökstudda grein fyrir því. Ráðgjafanefnd sem er Skipulagsstofnun og umhverfisráðuneyti til samráðs við undirbúning. Lýsing skipulagsáætlana Þegar vinna hefst við skipulagsgerð skal taka saman lýsingu á verkefninu þar sem gerð er grein fyrir áherslum, forsendum og fyrirliggjandi stefnu, hvernig samráði og kynningu verði háttað. Leita skal umsagnar um lýsinguna hjá Skipulagsstofnun og umsagnaraðilum og kynna hana fyrir almenningi. Breytt svæðisskipulag Staðbundnar ákvarðanir um landnotkun skulu eingöngu teknar í svæðisskipulagi að því marki sem nauðsyn þykir til að tryggja sameiginlega hagsmuni hlutaðeigandi sveitarfélaga, til að útfæra landsskipulagsstefnu á hlutaðeigandi svæði eða vegna nauðsynlegrar samræmingar landnotkunar í fleiri en einu sveitarfélagi. Staðfesting aðal- og svæðisskipulagsáætlana Vald til að staðfesta aðal- og svæðisskipulag verður hjá Skipulagsstofnun í stað umhverfisráðherra. Telji Skipulagsstofnun að synja beri staðfestingar sendir hún málið til ráðherra. Hverfisskipulag Nýtt skipulagsstig tengt deiliskipulagi en frábrugðið að því leyti að í hverfisskipulagi er heimilt að víkja frá kröfum um framsetningu sem gerðar eru til deiliskipulags í nýrri byggð og leggja frek
Ný skipulagsreglugerð
Öllum sveitarfélögum og 58 umsagnaraðilum sent bréf með ósk um ábendingar fyrir 15. okt. Skipulagsstofnun, umhverfisráðuneyti og Samband íslenskra sveitarfélaga vinna úr ábendingum og gera tillögu að reglugerð. Tillaga að nýrri reglugerð send sömu aðilum til umsagnar. Ný reglugerð tekur gildi 1. júlí 2011
Að ósk umhverfisráðuneytisins hefur Skipulagsstofnun hafið undirbúning að gerð tillögu að nýrri skipulagsreglugerð á grundvelli nýsamþykktra skipulagslaga. Það sem skoða þarf sérstaklega eru auðvitað nýmælin og hvernig þau verða útfærð í reglugerð. En einnig verður skoðað hvort ástæða er til að breyta öðru að fenginni reynslu. Öllum sveitarfélögum og 58 umsagnaraðilum sent bréf með ósk um ábendingar að fenginni reynslu fyrir 15. okt. Skipulagsstofnun, umhverfisráðuneyti og samband íslenskra sveitarfélaga vinna úr ábendingum og gera tillögu að reglugerð. Tillaga að nýrri reglugerð send sömu aðilum til umsagnar. Ný reglugerð tekur gildi 1. júlí 2011 ‹#›
Samráð við SÍS
Ákveðið að Skipulagsstofnun og Samband íslenskra sveitarfélaga standi sameiginlega fyrir námskeiðum um skipulagslög og lög um umhverfismat fyrir nýja sveitarstjórnarmenn. Áhugi á auknu samstarfi Skipulagsstofnunar og skipulagsmálanefndar SÍS. Aðkoma SÍS að samráðsfundi verði fastur liður
Skipulagsstofnun hefur um árabil talið vera þörf á auknu samráði Skipulagsstofnunar og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Ég lít svo á að nú sé kominn skriður á þetta samráð Ákveðið hefur verið að Skipulagsstofnun og Samband íslenskra sveitarfélaga standi sameiginlega fyrir námskeiðum í haust um skipulagslög og lög um umhverfismat fyrir nýja sveitarstjórnarmenn. Áhugi á auknu samstarfi Skipulagsstofnunar og skipulagsmálanefndar SÍS. Aðkoma SÍS að samráðsfundi verði fastur liður ‹#›
Skipulag hafsvæða
Þörf á skipulagi á hafsvæðum Strandsvæðaskipulag Norrænu skipulagsyfirvöldin Samstarfshópur á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar
Þörf á skipulagi á hafsvæðum Hér á landi hefur lengi verið rætt um þá árekstra sem geta orðið vegna þess að mörk sveitarfélaga og þar með skipulagið ná aðeins út að netlögum eða um 115 metra. Þetta hefur verið sérlega áberandi á Vestfjörðum þar sem í sama firði er t.d. efnistaka af hafsbotni, fiskeldi, kræklingarækt o. fl sem erfitt er að samræma. Fiskveiðum, sæköplum og siglingum má svo bæta þar við. Þá hefur í tengslum við áform um olíuleit á Drekasvæðinu verið reynt að finna lausn á því hvernig standa eigi að skipulagsmálum, leyfisveitingum og eftirliti. Strandsvæðaskipulag Vestfirðingar hafa um árabil verið með áform um strandsvæðaskipulag þótt svo ekki hafi enn verið teknar ákvarðanir um útvíkkun á mörkum sveitarfélaga tuil hafsins. Málið er nú í skoðun í sjávarútvegs- og umhverfisráðuneytinu og Fiskistofu. Norrænu skipulagsyfirvöldin Norrænu skipulagsyfirvöldin ákváðu á fundi sínum í Noregi í ágúst 2010 að aðgerðaráætlun 2011 – 2014 myndi meðal annars snúast um skipulag hafsvæða. Þar á bæ er talin augljós þörf fyrir öflugt stjórntæki til að þróa, skipuleggja, takmarka og setja reglur um málsmeðferð ákvarðanatöku. Í tilkynningu Evrópuráðsins um samþætta stefnumörkun á hafsvæðum er staðfest að skipulag sé grundvallaratriði og verkfæri þegar tryggja á sjálfbæra þróun haf- og strandsvæða. Samstarfshópur á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar Um þessar mundir er einnig verið að koma upp norrænum samstarfshópi á vegum norrænu ráðherranefndarinnar um skipulag hafsvæða. ‹#
DagskráinFimmtudagur 16. september
Hlutverk og ábyrgð, aðalskipulag Hafdís Hafliðadóttir Aðalskipulag Ísafjarðarbæjar 2008-2020 Jóhann Birkir Helgason Svæðisskipulag – hagsmunamál sveitarfélaga Stefán Thors, Ásmundur Friðriksson, Tryggvi Þórhallsson og Ólöf Örvarsdóttir Áherslur Sambands íslenskra sveitarfélaga Guðjón Bragason Leiðsögn um Reykholtsstað
DagskráinFöstudaginn 17. september
Mat á umhverfisáhrifum Rut Kristinsdóttir Hættumatsrammi Alþjóðaveðurstofunnar Trausti Jónsson Nýlegir úrskurðir Þorvaldur Þorsteinsson Deiliskipulag, ábendingar og leiðbeiningar Málfríður K. Kristiansen Fundarslit kl. 12:15
‹#›
Comments