LaunataxtarMánaðarlaun fyrir dagvinnu allt að 285 þúsund krónur hækka 1. júní 2010 um 6.500 kr. en hækka minna að 310 þúsund krónum sbr. neðangreint. Mánaðarlaun fyrir dagvinnu umfram 310 þúsund eru óbreytt. 1. júní 2010 Launatölur á bilinu Hækkun 151.156 – 284.999 kr. 6.500 kr. 285.000 – 289.999 kr. 5.500 kr. 290.000 – 294.999 kr. 4.500 kr. 295.000 – 299.999 kr. 3.500 kr. 300.000 – 304.999 kr. 2.500 kr. 305.000 – 309.999 kr. 1.500 kr.
um framlengingu og breytingar á kjarasamningi fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs annars vegar og Samflots bæjarstarfsmannafélaga hins vegar Kynning á samkomulagi
‹#›
Félag opinberra starfsmanna á Austurlandi Félag opinberra starfsmanna á Suðurlandi Félag opinberra starfsmanna á Vestfjörðum Starfsmannafélag Dala- og Snæfellsnessýslu Starfsmannafélag Fjallabyggðar Starfsmannafélag Fjarðarbyggðar Starfsmannafélag Hafnarfjarðar Starfsmannafélag Húsavíkur Starfsmannafélag Skagafjarðar Starfsmannafélag Vestmannaeyja
Aðildarfélög Samflots sem standa að samkomulagi þessu.
‹#›
Forsendur og markmið
Markmið stöðugleikasáttmálans, sem gerður var þann 25. júní 2009 af aðilum vinnumarkaðarins og ríkisstjórnar Íslands, er auk viðreisnar efnahagslífsins meðal annars að verja undirstöður velferðarkerfisins, standa vörð um menntakerfið og verja störf eins og aðstæður frekast leyfa. Það er þó almenn sátt um að leitast við að tryggja kaupmátt lægstu launa starfsmanna ríkisins. Samkomulag þetta er gert til að ná því markmiði.
‹#›
Gildistími og endurskoðun
Gildandi kjarasamningar aðila framlengjast frá 1. júlí 2009 til 30. nóvember 2010 með þeim breytingum og fyrirvörum sem í samningi þessum felast og falla þá úr gildi án frekari fyrirvara. Leiði endurskoðun á framkvæmd kjarasamninga á almennum markaði fyrir 1. nóvember 2009 til breytinga eða uppsagnar, er með samþykki aðila samnings þessa hægt að taka til skoðunar hvort forsendur séu fyrir sambærilegri endurskoðun. Afstaða til endurskoðunar skal liggja fyrir eigi síðar en 31. október 2009.
‹#›
Launataxtar
Mánaðarlaun fyrir dagvinnu allt að 180 þúsund krónur hækka 1. júlí 2009 og 1. nóvember 2009 um 6.750 kr. í hvort skipti en hækka minna að 210 þúsund krónum sbr. neðangreint. Mánaðarlaun fyrir dagvinnu umfram 210 þúsund eru óbreytt. Launataxtar mánaðarlauna skv. grein 1.1.1 hækka sem hér Launabil í kr. 1. júlí ‘09 1. nóv. ’09 137.656 - 179.999 6.750 6.750 180.000 - 184.999 5.800 5.800 185.000 - 189.999 4.800 4.800 190.000 - 194.999 3.900 3.900 195.000 - 199.999 2.900 2.900 200.000 - 204.999 1.900 1.900 205.000 - 209.999 1.000 1.000
‹#›
Launataxtar
Mánaðarlaun fyrir dagvinnu allt að 285 þúsund krónur hækka 1. júní 2010 um 6.500 kr. en hækka minna að 310 þúsund krónum sbr. neðangreint. Mánaðarlaun fyrir dagvinnu umfram 310 þúsund eru óbreytt. 1. júní 2010 Launatölur á bilinu Hækkun 151.156 – 284.999 kr. 6.500 kr. 285.000 – 289.999 kr. 5.500 kr. 290.000 – 294.999 kr. 4.500 kr. 295.000 – 299.999 kr. 3.500 kr. 300.000 – 304.999 kr. 2.500 kr. 305.000 – 309.999 kr. 1.500 kr.
‹#›
Launataxtar
Þar sem lægstu tölur mánaðarlauna hækka um krónutölu er hlutfallslegt bil milli launaflokka og þrepa ekki með sama hætti og var. Af þessu leiðir að greinar í samningum um hlutfallstölur milli launaflokka og þrepa eiga ekki við. Þrátt fyrir að bil milli launatala verði ólík halda viðeigandi greinar gildi sínu að öðru leyti. Dæmi: Í stofnanasamningum þar sem álag er gjarnan metið í prósentum, sbr. grein 1.2.2 í sumum kjarasamningum og samsvarandi greinar í öðrum, skal breyta talningu álagsþrepa eftir því sem við á, t.d. þar sem talað er um 5% hækkun vegna álags skal nú miðað við tvö álagsþrep.
‹#›
Persónuuppbót
Persónuuppbót í desember verður sem hér segir: Á árinu 2009 ........kr. 45.600. Á árinu 2010 .........kr. 46.800. Þau stéttarfélög sem hafa ákvæði um hærri persónuuppbót skulu halda óbreyttri upphæð frá síðustu samningum á þessu samningstímabili, en þó ekki lægri en ofangreindar fjárhæðir.
‹#›
Sérstök orlofsuppbót
Orlofsuppbót verður sem hér segir: Á árinu 2010 ..............................................kr. 25.800. Þau stéttarfélög sem hafa ákvæði um hærri orlofsuppbót skulu halda óbreyttri upphæð frá síðustu samningum á árinu 2010.
‹#›
Starfsendurhæfingarsjóður
Í lok 14. kafla (gr. 14.5 eða gr. 14.6 eftir atvikum) bætist ný grein sem orðist svo: Iðgjald launagreiðanda í Starfsendurhæfingarsjóð skal nema 0,13% af heildarlaunum félagsmanna. Jafnframt breytist heiti kaflans í „Fjölskyldu- og styrktarsjóður og iðgjöld í Starfsendurhæfingarsjóð“.
‹#›
Atkvæðagreiðsla
Samningsaðilar skulu bera samning þennan upp til samþykktar. Hafi gagnaðila ekki borist tilkynning um niðurstöðu fyrir klukkan 16:00 þann 14. ágúst 2009 skoðast hann samþykktur.
‹#›
Um bókanir og fylgiskjöl með síðustu kjarasamningum
YFIRLÝSLING Aðilar eru sammála um að vinna sameiginlega áfram að þeim málum sem fram koma í bókunum og fylgiskjölum sem gerðar voru í síðustu kjarasamningum, enda komi efni þeirra ekki fram í sameiginlegri verkáætlun með þessum samningi. Aðilum er ljóst að niðurstaða þeirrar vinnu dregur dám af stöðu efnahagsmála.
‹#›
Bókanir
Bókun 1 Aðilar eru sammála um að framlengja bókanir um þróunar- og símenntunarsjóði félaganna auk framlagsins til Fræðslusetursins Starfsmenntar óbreyttar út komandi samningstímabil. Þessar bókanir, sem eru ekki varanlegur hluti kjarasamninga, eru nær allar á þann veg að þar eru tiltekin framlög launagreiðanda í sjóði með einföldum hætti.
‹#›
Bókanir
Bókun 2 Stefnt er að því að BSRB og aðildarfélög þess verði að fullu þátttakendur í Fræðslumiðstöð atvinnulífsins ehf. (FA). Framlag ríkisins skal taka mið af vaxandi hlutverki FA með auknu framlagi til miðstöðvarinnar í samræmi við yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 17. febrúar 2008 og stöðugleikasáttmála aðila vinnumarkaðarins og ríkisstjórnarinnar frá 25. júní 2009. Stefnt er að því að BSRB og aðildarfélög þess verði að fullu þátttakendur í FA þann 1. janúar 2010. Undanfarin ár hefur ríkið styrkt mannauðssjóð BSRB sbr. samkomulag aðila frá 15. febrúar 2007 sbr. og bókun 6 í síðustu kjarasamningum. Í ljósi ofangreindra breytinga verður það framlag 5 milljónir á ári, árin 2009 og 2010 til að ljúka því þróunarstarfi sem þar hefur verið unnið.
‹#›
Framkvæmdaáætlun
Samningsaðilar eru sammála um að vinna sameiginlega að þeim málum sem hér eru tiltekin. Aðilum er ljóst að niðurstaða þeirrar vinnu dregur dám af stöðu efnahagsmála. Myndaður verði stýrihópur samningsaðila til að samhæfa og fylgja eftir framkvæmdaáætlun þessari.
‹#›
Framkvæmdaáætlun
Mannauðsmál / Starfsþjálfun Lagaumhverfi Samningstexti Vinnuumhverfi / vaktavinna Slysatryggingar Tölfræði- og upplýsingagjöf Fræðsla um ráðningaform og reynslutíma.
‹#›
Kynningarfundir og kosning
Hverju félagi er í sjálfsvald sett hvernig þau standa að kynningu. Gert er ráð fyrir að kynningin fari fram í fyrstu viku ágústmánaðar og atkvæðagreiðslan í vikunni þar á eftir. Sameiginleg rafræn kosning verður og því áríðandi að kjörskrár verði klárar og komnar til Halla (halli@hafnarfjordur.is) ekki seinna en 1. ágúst, athuga þarf að kjörskrár eru tvær, ein fyrir ríkisstarfsmenn og önnur fyrir starfsmenn sem þiggja laun skv. samningi við Launanefnd. ÁRÍÐANDI ER AÐ HEIMILSFÖNG FÉLAGSMANNA SÉU RÉTT. Kjörgögn fara í póst 7. ágúst og kjörstaður opnar 10. ágúst kl: 12.00 og er opinn til kl: 12.00 13. ágúst. Talning fer fram þann dag og niðurstaðan tilkynnt föstudaginn 14. ágúst kl: 10.00 Framh. .......................
‹#›
Kynningarfundir og kosning
Settir verða upp tveir kjörtenglar á heimasíðu Samflots, annar fyrir ríkisstarfsmenn og hinn fyrir þá sem þiggja laun skv. Launanefndarsamningnum.
‹#›
<a href="http://www.slidefinder.net/l/launataxtar/32996285" class="slidefinder">kynning Ríki júlí 2009_1203898209</a>
Det3
<script type="text/javascript" src="http://www.slidefinder.net/scripts/embedded.js"></script>
Comments