Newest Viewed Downloaded

Kynningarfundur um leiðarljós3. maí 2010

Kynningarfundur um leiðarljós

3. maí 2010

Dagskrá

Samvinnunefnd um Svæðisskipulag Suðurnesja Leiðarljós og markmið Niðurfelling Svæðisskipulags – hávaðalína Umræður og spurningar ‹#›

Samvinnunefnd um Svæðisskipulag

Í nefndinni eru fulltrúar: Reykjanesbæjar. Grindavíkurbæjar. Sandgerðisbæjar. Sveitarfélagsins Voga. Sveitarfélagsins Garðs. Skipulagsnefndar Keflavíkurflugvallar. Varnarmálastofnunar. Auk þess sitja fundi nefndarinnar: Fulltrúi Skipulagsstofnunar. Ráðgjafar nefndarinnar frá VSÓ Ráðgjöf og Kanon arkitektum. ‹#›

Samvinnunefnd um Svæðisskipulag

Tilgangur Tilgangur með svæðisskipulaginu er að búa til leikreglur skipulagsyfirvalda fyrir þau málefni sem eru mikilvæg á svæðisvísu og snerta hagsmuni fleiri en eins aðila í samvinnunefndinni. Leiðarljós og áherslur Mótun leiðarljósa og markmiða byggja á vinnu undanfarinna mánaða og er ætlað að undirstrika sameiginlega framtíðarsýn fyrir Suðurnesin fyrir þá málaflokka sem taldir eru mikilvægir fyrir hagsmuni og þróun Suðurnesja. ‹#›

Samvinnunefnd um Svæðisskipulag

Almenn leiðarljós Sérstaða Suðurnesja og sóknarfæri samvinnu nýtt til hagsbóta fyrir öll sveitarfélögin, Keflavíkurflugvöll og Varnarmálastofnun, svo tryggja megi eftirsóknarverða framtíðarbúsetu og eitt atvinnusvæði, með skynsamlegri nýtingu lands og landgæða og sjálfbærri þróun að leiðarljósi. ‹#›

Skipulagsvinnan

Undirbúningur og gagnaöflun Afmörkun viðfangsefna Leiðarljós Stefnumið fyrir hvern málaflokk Markmið / áherslur Um verkefni og aðgerðir sem þarf að vinna til að ná settu marki Skipulagsgerð Skilgreining og framsetning þeirra verkefna og aðgerða sem aðilar ætla að ráðast í á skipulagstímabilinu Svæðisskipulag Suðurnesja 2008-2024 Tillaga auglýst í haust Hljóti staðfestingu í árslok 2010 ‹#›

Leiðarljós

Atvinna Flugvallarsvæðið Náttúruauðlindir Veitur og orkuvinnsla Byggð Samgöngur Samfélag ‹#›

Atvinna

Leiðarljós Öflugt atvinnulíf og fjölbreytt framboð starfa er forsenda blómlegrar byggðar og aukinna lífsgæða íbúanna. Suðurnesin verði eitt atvinnusvæði og samkeppnishæfni þess styrkt með áherslu á sterka innviði og gott aðgengi að auðlindum ásamt virkjun atvinnumöguleika sem tengjast alþjóðlegum flugvelli, öryggis-svæðum og umferð um þetta helsta hlið landsins að umheiminum. ‹#›

Atvinna

Markmið / Áherslur Samvinna og samstarf sveitarfélaganna verði eflt til aukinnar uppbyggingar í atvinnumálum. Áhersla á þróun atvinnusvæða þar sem samlegðaráhrif aðgengis að auðlindum og öflugra innviða, s.s. alþjóðaflugvallar, hafna og vegasamgangna, eru nýtt til atvinnuuppbyggingar. Auka þjónustu við ferðamenn og sérstaða svæðisins nýtt til uppbyggingar ferðaþjónustu. Tryggja afkastagetu innviða fyrir atvinnusvæði, þ.e. flutningskerfi orku, vatns og fráveitu, samgöngur, og sérhæft vinnuafl. Núverandi atvinnugreinar verði efldar og hlúð sérstaklega að nýsköpun, rannsóknarstarfi og menntun innan þeirra. Fjölbreytt menntun og rannsóknir skipi verðugan sess sem mikilvægur þáttur í þróun nýrra atvinnugreina á Suðurnesjum. ‹#›

Keflavíkurflugvöllur

Leiðarljós Keflavíkurflugvöllur, sem er helsta hlið landsins að umheiminum, og öryggis‐ og varnarsvæði verða áfram ein af grunnstoðum atvinnulífs á Suðurnesjum. Tekið verði ríkt tillit til flugvallarins og tryggt að hann fái nægt rými til þróunar í framtíðinni. Tekið verði mið af þeim takmörkunum, sem tilheyra alþjóðlegum flugvelli, og þær verði samræmdar með hagsmuni flugvallarins og Suðurnesja í heild að leiðarljósi. Sama á við um takmarkanir sem snúa að öryggis‐ og varnarsvæðum. ‹#›

Keflavíkurflugvöllur

Markmið / áherslur Flugvellinum verði tryggt nægt landrými fyrir flugbrautir og þróun atvinnusvæða. Sveitarfélög á Suðurnesjum og Keflavíkurflugvöllur ohf. vinni í sameiningu að uppbyggingu flugvallarins og þróun atvinnusvæða í nágrenni hans. Stækkun flugvallarins taki mið af hagkvæmri uppbyggingu atvinnusvæða og fjölbreyttum tækifærum. Horft verði til möguleika á flutningi innanlandsflugs til Keflavíkurflugvallar. Áhersla er á öflugar samgöngutengingar milli flugvallarsvæðis, sveitarfélaga á Suðurnesjum og höfuðborgarsvæðisins. Unnið verði að skilgreiningu hindrunarsvæða flugumferðar og takmarkana vegna öryggis og varnarsvæða í samvinnu sveitarfélaga, Keflavíkurflugvallar ohf. og yfirvalda varnarmála. Mörkuð verði stefna um hljóðvist umhverfis flugvöllinn. ‹#›

Náttúruauðlindir

Leiðarljós Helstu náttúruauðlindir Suðurnesja eru grunnvatn, jarðhiti og einstök jarðfræði. Stuðlað verði að ábyrgri og hagkvæmri nýtingu auðlinda á Suðurnesjum til hagsbóta fyrir íbúa svæðisins og komandi kynslóðir. Mannvirkjagerð, orkuöflun og byggðaþróun taki mið af náttúruvernd, skynsamlegri nýtingu og þeim tækifærum sem felast í náttúrufræðilegri sérstöðu svæðisins á heimsvísu. ‹#›

Náttúruauðlindir

Markmið / áherslur Áhersla lögð á ábyrga nýtingu sameiginlegra auðlinda. Háhitasvæði á Suðurnesjum verði flokkuð með tilliti til orkuöflunar og verndunar. Endurskoða afmörkun vatnsverndarsvæða. Við endurskoðun vatnsverndarsvæða verði horft til samspils náttúru, nýtingar, vatnsöryggis og fyrirhugaðra atvinnusvæða. Skilgreina sameiginleg tækifæri sem tengjast jarðvísindum, jarðsögu og menningarminjum. Áhugaverð svæði, staðbundið og á heimsvísu, verði kortlögð. Unnið verði að skilgreiningu Eldfjallagarðs á Reykjanesskaga. ‹#›

Veitur og orkuvinnsla

Leiðarljós Stuðlað verði að ábyrgri og hagkvæmri nýtingu auðlinda á Suðurnesjum til hagsbóta fyrir íbúa svæðisins og komandi kynslóðir. Áhersla verði lögð á að nýting orku sem aflað er á Suðurnesjum sé undirstaða fjölbreyttrar atvinnustarfsemi. Flutningskerfi raforku og annarra þjónustukerfa á Suðurnesjum verði samræmt með áherslu á hagkvæmni, þjónustugæði og afhendingaröryggi. Tryggt sé öruggt aðgengi að neysluvatni á Suðurnesjum. ‹#›

Veitur og orkuvinnsla

Markmið / áherslur Háhitasvæði á Suðurnesjum verði flokkuð með tilliti til orkuöflunar og verndunar. Samnýta flutningsleiðir mismunandi þjónustukerfa eins og kostur er og að tekið verði tillit til umhverfisins við afmörkun flutningaleiða. Fyrirkomulag fráveitumála verði skoðað heildstætt á Suðurnesjum og leitast við að samræma áætlanir vegna atvinnusvæða og starfsemi á orkuvinnslusvæðum. Stuðlað verði að ábyrgri nýtingu auðlinda með markvissri áætlanagerð sem byggir á núverandi þekkingu og áframhaldandi rannsóknum á orkuöflunarsvæðum og vatnsverndarsvæðum. Þjónustukerfi miði að því að tryggja afhendingaröryggi og gæði. Uppbygging veitukerfa og orkuvinnslusvæða taki mið af jarðfræðilegri sérstöðu, verndarsvæðum og útivistarsvæðum. ‹#›

Showing 1 - 20 of 34 items Details

Name: 
08182_Leiðarlj�...
Author: 
Stefán Gunnar Thors
Company: 
VSÓ Ráðgjöf
Description: 
Kynningarfundur um leiðarljós3. maí 2010
Tags: 
verði | sem | til | við | fyrir | suðurnesjum | leiðarljós | með
Created: 
4/26/2010 4:54:14 PM
Slides: 
34
Views: 
0
Downloads: 
0
Rating: 
0


> Comment



Share this presentation
|

Comments

Share this presentation:

|
Sitemap