Newest Viewed Downloaded

Málþing um fjarkennslu og fjarnám við Háskóla Íslands 6. mars 2009 Emil Björnsson verkefnisstjóri Þekkingarnets Austurlands Sigurbjörg Jóhannesdóttir sérfræðingur menntamálaráðuneytinu Vonir og væntingar Lausnir og leiðir

Málþing um fjarkennslu og fjarnám við Háskóla Íslands 6. mars 2009 Emil Björnsson verkefnisstjóri Þekkingarnets Austurlands Sigurbjörg Jóhannesdóttir sérfræðingur menntamálaráðuneytinu Vonir og væntingar Lausnir og leiðir

Fræðslumiðstöðvar og þekkingarsvæði

9 3 4 1 8 5 7 2 Main Centres Mini Certres 6 0

Þekkingarnet Austurlands dæmi um fræðslumiðstöð

Þjónusta Símenntun Uppbygging námsvera og þjónustu Samstarf við framhaldsskóla Stuðningur við háskólanám Stuðningur við uppbyggingu rannsóknastarfs Rannsóknabókasafn í uppbyggingu Ráðgjöf við einstaklinga, fyrirtæki og stofnanir Starfsstöðvar Vonarland, Egilsstöðum. Fimm kennslustofur og miðstöð þjónustu. 5 starfsmenn. Nýheimar, Höfn. Tvær kennslustofur, 1,5 starfsmenn. Búland, Neskaupsstað. 1,5 starfsmaður. Áhersla á rannsóknir. Starfsstöðvar á Vopnafirði og Reyðarfirði með einn starfsmann hvor Auk þess 5 námsver.

Eru væntingar til gerðar til HÍ?

Já, heldur betur: Um fjölbreytt námsframboð í dreifnámi Gott samstarf við fjarnema í samstarfi við fræðslumiðstöðvar á landsbyggðinni Greiðan aðgang að upplýsingum

Stenst HÍ þessar væntingar?

Nei Skortur á heildarstefnu um dreifnám Ríkjandi viðhorf Takmarkað námsframboð Takmörkuð þekking á möguleikum í dreifnámi Skortur á samstarfi við fræðslumiðstöðvar ‹#›

Hvers vegna ekki?

,,Stefna HÍ varðandi fjarnám hefur ekki verið uppá marga fiska a.m.k. hvað grunnnám varðar.  Það virðist vera undir hverri deild fyrir sig komið hvort og hve mikið framboð er í fjarnámi” ,,Menntavísindasvið undanskilið.”

Það þarf að bretta upp ermum:

„Fullt af góðu, áhugasömu fólki, t.d. kennurum og tæknifólki sem er viljugt að þróa og þjónusta fjarnám.”

Hvað er til ráða?

Viðhorfsbreyting Miðlæg ákvörðun um að skólinn líti á sig sem skóla allra landsmanna Allt nám í dreifnámsumhverfi Endurmenntun starfsfólks Bætt samstarf við fræðslumiðstöðvar um þjónustu við fjarnema Miðlægar upplýsingar um dreifnám Væntingar mínar eru að HÍ sýni þá ábyrgð að telja sig vera háskóla allra landsmanna. Öðruvísi getur hann aldrei orðið „með þeim 100 bestu“ Til þess að landsmenn allir líti þannig á skólann, þarf stofnunin að fylgjast með tímanum og breyta kennsluaðferðum sínum í átt til sveigjanleika, bjóða nemendum upp á nám án „landamæra“ og hætta að líta á skólann í formi steinsteypu.  Viðhorf kennara og stjórnenda skólans til fjarnáms þarf að breytast þannig að það þurfi ekki allir sem hyggja á háskólanám að búa á sömu þúfunni á suðvesturhorninu, né að það sé alveg nóg fyrir landsbyggðarliðið að geta sótt fjarnám á Akureyri. Sá skóli sem býður ekki upp á sveigjanlega kennsluhætti í framtíðinni verður með tímanum staðnaður og annars flokks stofnun.  Þess vegna verður að gera þá kröfu að nemandi geti stundað nám fjarri „staðnum“ í öllum greinum með aðstoð frá símenntunarmiðstöðvum og háskólasetrum vítt og breitt um landið.  Það þarf einnig að gera ráð fyrir því að nemandi geti stundað nám við fleiri en eina stofnun í einu og taka tillit til að einingar geti nýst á milli háskóla.   Neikvæð afstaða skólans til fjarnáms verður með tímanum til þess að krafan um staðbundið háskólanám verður sífellt sterkari og ég tel að með því móti ýti HÍ undir einhæft framboð á háskólanámi og að íslenskir nemendur leiti sífellt meira til erlendra háskóla vegna nútímalegra viðhorfa erlendis og eðlilegrar þróunar á tímum rafrænna samskipta. ‹#›

Samstarf við fræðslumiðstöðvarnar

Fræðslumiðstöðvarnar eru heimahöfn fjarnemans Starfsfólk fræðslumiðstöðvanna eru sérfræðingar í þörfum fjarnema Fræðslumiðstöðvarnar gera kröfu um miðlægan gagnagrunn um möguleika til dreifnáms Netháskóli? Hvernig blasir stefna HÍ varðandi fjarnám við samstarfsaðilunum? -„Gamli“ H.Í. hefur verið frekar stefnulaus í fjarnámsmálum.  Fullt af góðu, áhugasömu fólki, t.d. kennurum og tæknifólki sem er viljugt að þróa og þjónusta fjarnám.  Það hefur hins vegar vantað mjög miðlæga stefnumótun og stjórn á fjarnámi. Einstakir kennarar/skorir/deildir hafa haft of mikið vald til að bjóða eða bjóða ekki fjarnám.  Ákvörðun um framboð fjarnáms þarf að vera tekin meira miðlægt. Það þarf að samnýta krafta innan og utan háskólans og samstilla farmboð eftir deildum/skorum/kúrsum. Auka með því líkur á að samfella verði í framboðinu, þ.e. hvaða „heilar“ námsbrautir á að bjóða í fjarnámi og hvað ekki.   -Mikil þekking og reynsla innan „gamla“ KHÍ á sviði fjarnámi. H.Í. ætti að byggja nýja fjarnámsstefnu og –rekstur á þeirri þekkingu. -HÍ (allur) hefur svolítið vanmetið hlutverk fræðslumiðstöðvanna í þjónustu við fjarnema.  Þjónusta fræðslumiðstöðvanna snýst alls ekki um stöku aðgang að fjarkennslubúnaði eins og oft er talað um.  Mun mikilvægari þættir eru ráðgjöf, stuðningur, aðstaða, prófumsjón og námsver (sums staðar m. sólarhringsaðstöðu).  T.d. eru nemar „gamla“ KHÍ meðal þeirra nema sem fræðslumiðstöðvarnar hafa hvað mest þjónustað gegnum árin.  Veit skólinn af því?  Gerir hann sér grein fyrir því? ‹#›

Af hverju Netháskóli ?

Ný hugsun í þróun háskólanáms, háskóli án staðsetningar, innihald ofar skipulagi Mikilvægt að auka samstarf á háskólastiginu, samstarf í stað samkeppni Veruleg þörf á því að bæta aðgengi að upplýsingum Nýta þarf mannauð og þekkingu á landsbyggðinni betur

Hvað er Netháskóli

Margar leiðir til að nálgast þetta hugtak Íslenska leiðin – Hugmyndafræði Kvasis: Upplýsingasíða um allt dreifnám á háskólastigi og þjónustu við dreifnema Þjónustustofnun með tækniþjónustu, námsráðgjöf og upplýsingagjöf

Netháskóli: Markmið verkefnisins

Þróa leiðir til að kynna framboð á háskólanámi og leiðir til að laga það að þörfum vinnandi fólks. Gera háskólanám aðgengilegt þeim er búa á jaðarsvæðum sem og þeim er kjósa að skipuleggja nám sitt með vinnu. byggja upp vefgátt eða markaðstorg fyrir háskóla til að koma tilboðum sínum um dreifnám á framfæri. Skapa samstarfsvettvang fyrir háskóla og símenntunarmiðstöðvar sem þjónusta nemendur í þeirra nærumhverfi. Skapa umhverfi fyrir þekkingarsetur á landsbyggðinni til að byggja upp og þróa nám á háskólastigi. Þróa aðferðir og stuðning við nemendur í dreifnámi.

Sú vinna sem hefur farið fram

Þarfagreiningarvinna sem var byggð á viðtölum við 18 starfsmenn íslenskra háskóla ásamt viðtölum við 3 starfsmenn fræðslumiðstöðva og stjórn Kvasis. Tillaga að vefsíðu Netháskólans. Hönnun á merki, viðmóti og útliti. Samstarf við Jönköping University í Svíþjóð, University of Highlands and Islands í Skotlandi og SMART – Labrador í Kanada. Tillaga að samning milli samstarfsaðila

Nokkrar niðurstöður úr viðtölum

Háskólarnir sjá sem öflugt markaðstæki Fræðslumiðstöðvarnar sjá sem tæki til að veita betri þjónustu við nemendur og auka framboð á fjarnámi, m.a. með samvinnu milli háskólanna Mismunandi notkun á hugtökum (þyrfti að samræma) Tryggja rekstur í 3 ár áður en er byrjað Stjórnun í höndum stjórnunarhóps og ÞNA sér um reksturinn. Einnig sérstakur tæknihópur. Gögn um nám flutt frá gagnagrunnum háskólanna með vefþjónustum inn í gagnagrunn Netháskólans.

Stærstu þröskuldarnir

Vilji háskólanna til að starfa saman að því að bjóða upp á sameiginlegar námsleiðir Ef háskólarnir geta ekki samstillt sig Hætta á að háskólarnir vilji ekki veita aðgang að þeim upplýsingum sem Netháskólinn þarf Mat á einingum milli háskóla

Markmið vefgáttar Netháskólans

Að veita upplýsingar um: Fjarnám á háskólastigi Þá þjónustu, ráðgjöf og aðstöðu sem nemendum í fjarnámi stendur til boða. Með hvaða hætti nemendur geta sett saman nám frá fleiri en einum háskóla og hvert þeir geta leitað með slíkar hugmyndir   Að veita aðgengi að: Skráningu í námskeið og námsbrautir Bókun á aðstöðu og þjónustu Upplýsingasöfnum og ráðgjöf Samskiptasíðum fyrir námshópa í verkefnavinnu o.s.frv.

Showing 1 - 20 of 25 items Details

Name: 
KYNNING_VonirOgVaentin...
Author: 
stefania
Company: 
Fræðslunet Austurlands
Description: 
Málþing um fjarkennslu og fjarnám við Háskóla Íslands 6. mars 2009 Emil Björnsson verkefnisstjóri Þekkingarnets Austurlands Sigurbjörg Jóhannesdóttir sérfræðingur menntamálaráðuneytinu Vonir og væntingar Lausnir og leiðir
Tags: 
við | til | sem | með | samstarf | háskóla | þjónustu | fyrir
Created: 
9/19/2007 12:28:05 PM
Slides: 
25
Views: 
0
Downloads: 
0
Rating: 
0


> Comment



Share this presentation
|

Comments

Share this presentation:

|
Sitemap