Könnun foreldrafélaga Sólbrekku og Mánabrekku Maí 2010
Könnun foreldrafélaga Sólbrekku og Mánabrekku Maí 2010
Tilgangur, markmið og aðferðarfræði
Kanna ánægju foreldra leikskólabarna á Nesinu með þjónustu leikskólans, foreldrafélaga og bæjarfélagsins. Spurningarlisti á netinu sendur á netföng foreldra, báðir foreldrar höfðu kost á að svara. Foreldrar höfðu kost á að svara dagana 26. apríl til 3.maí 2010.
Dagskrá
Um leikskólann Um deildirnar Um foreldrafélögin Um Nesið
Um leikskólana
Á hvaða leikskóla eru börnin þín?
Sólbrekka 97 börn 150 foreldrar Svarhlutfall 41% Mánabrekka 90 börn 144 foreldrar Svarhlutfall 56%
Hversu sammála ertu eftirfarandi fullyrðingum um leikskólann
....brotið niður á skóla
Annað sem þú vilt að komi fram
Sólbrekka Sum aukaherbergi of lítil. Barnið mitt hefur verði á Asparlundi og Grenilundi. Frábært starfsfólk þar. Eina sem hægt er að kvarta yfir er sumarleyfið. Við hjónin munum eyða sumarfríinu sitt í hvoru lagi vegna þessa. Sólbrekka er alger daumur fyrir börnin mín, þeim líður þar mjög vel og það skiptir mig mestu máli. Sumarleyfistíminn er ósveigjanlegur. Stuðningsþjónusta versnaði í vetur. Við værum tilbúin að borga meira fyrir sveigjanlegri dvalartíma. Gera það verulega endurbætur á útisvæði Sólbrekku Það mætti gera útileiksvæðið fyrir yngstu börnin skemmtilegra. Dvalatími mætti vera 9 tímar (Þó svo ég þurfi ekki á því að halda) Bjóða á upp á sambærilegan dvalartíma og í öðrum sveitarfélögum Mánabrekka Varðandi aðbúnaðinn, þá er ég ánægð með búnaðinn, en mér finnst fermetrafjöldinn per barn allt of lítill. Varðandi stuðningsþjónustuna, þá er ég ánægð með þá þjónustu sem við höfum notið, en hefði gjarnan viljað meiri. Ég hef átt börn í leikskólanum í mörg ár og þar til fyrir nokkrum mánuðum var stuðningsþjónusta frábær, en eftir að Dísa fór og minna aðgengi er að talmeinafræðingi hefur þetta breyst til hins verra Bendi á að svörin t.d. um stuðningsþjónustuna eiga við fyrir breytingarnar núna eftir áramót. Geri mér ekki grein fyrir hversu mikla stuðningsþjónustu er boðið upp á núna. Sísíar sárt saknað úr listaskálanum. Er afar ósátt með lokun listaskála og vildi fá hann aftur í gagnið Okkur finnst stjórnendur leikskólans Mánabrekku ekki faglegir og sveiganleiki mætti
Annað sem þú vilt að komi fram
Mánabrekka frh. Ég hef hingað til verið mjög ánægð með Mánabrekku en í ljósi samruna leikskólanna og aldursskiptingu á deildum finnst mér stefnan nú vera óljós og ég er óánægð með það óhagræði sem verður fyrir foreldra að fara með börn á mismunandi aldri í sitthvora bygginguna. Stuðningsþjónusta hefur verið skorin niður þar sem starfsmaður sem sá um fyrirbyggjandi aðgerðir varðandi seinkaðan málþroska var fluttur til í starfi. Mikill missir af sérkennurum í föndri og myndlist Tel að uppsögn myndlistakennara Mánabrekku hafi skert gæði skólans verulega. Starfsfólk Mánabrekku er alveg frábært sem er mikill auður fyrir sveitafélagið sem má alls ekki tapast. Hlúa þarf að því góða starfi sem unnið er. Mánabrekka er besti leikskóli sem ég hef kynnst með skýra leikskólastefnu sem skilar sér mjög vel til barna og foreldra með yndislegu viðmóti og virðingu. Þakklæti er mér efst í huga! Finnst leiðinlegt að hafa þurft að sjá á eftir sérkennslu í listaskála sem og málörvun Það á að lengja vistunartíma í max 9 klst. Mér finnst rugl að ætlast til þess að maður komist til og frá vinnu á 15 mín. Skapar stress á morgnana f mig og barnið mitt og aftur f mig seinnipartinn. Er mér mikill höfuðverkur. Mánabrekka er besti leikskóli heimi - svo einfalt er það. Mér finnst deildirnar hafa of lítið rými/pláss. Frábært starfsfólk Ánægður með Grænfánann Ég valdi Mánabrekku fyrir barnið mitt og vil að það klári þann leikskóla hvernig sem raðað verður í eftir aldri, það er eldri börn í öðrum og yngri bör
Um deildirnar
Hversu sammála ertu eftirfarandi fullyrðingum um deildir leikskólanna
Hversu sammála ertu eftirfarandi fullyrðingum um deildir leikskólanna
Hversu sammála ertu eftirfarandi fullyrðingum um deildir leikskólanna
Ýtarlegri greining
Ýtarlegri greining á svörum niður á deildir leikskólanna bárust eingöngu leikskólastjórum sem nýta þau til kynningar innan leikskólans.
Foreldrafélögin
Hversu sammála ertu eftirfarandi fullyrðingum um foreldrafélag leikskólans
Hvernig getur foreldrafélagið bætt þjónustu sína? Endilega notaðu reynslu þína úr öðrum leikskólum sé hún til staðar.
Mánabrekka Ég er sátt við foreldrafélagið Lagt harðar að því að bæta matseðilinn Foreldrafélagið stóð sig frábærlega í rimmunni við bæjaryfirvöld í byrjun árs. Og stendur sig frábærlega almennt séð. Kannski mætti senda fundargerðir af stjórnarfundum svo maður viti meira hvað er að gerast. Foreldrafélagið hefur staðið sig afbragðs vel í viðbrögðum við atburðum vetrarins þ.e. vegna gjaldskrárhækkana og svo sameiningar leikskóla sem bæjaryfirvöld stóðu mjög illa að. Foreldrafélagið hefur unnið frábært starf Það er stórkostlegt foreldrafélag á Mánabrekku, veit ekki hvernig það gæti vera betra Samvera eftir leikskóla sem foreldrar skipuleggja, kannski einu sinni á önn eða vetri. Mér fyndist að við ættum að funda 1x á önn oftar og ræða um hvað megi betur fara og hvernig hægt sé að bæta úr því, auk þess sem við gætum tekið saman hvað okkur fyndist gott Mér finnst foreldrafélagið standa sig sérstaklega vel. Ég á annað barn í leikskóla í Reykjavík. Að bera saman foreldrafélagið á Mánabrekku og á þeim bæ er eins og bera saman hamstur í hlaupagrind og agúrku. Foreldrafélag Mánabrekku er óendanlega virkar en hitt félagið. Hef aðeins fárra vikna reynslu og get því engu svarað. Hefur staðið sig sérstaklega og tekið mjög vel á mikilvægum málum. Í mjög góðum málum og engu þar við að bæta.
Hvernig getur foreldrafélagið bætt þjónustu sína? Endilega notaðu reynslu þína úr öðrum leikskólum sé hún til staðar.
Sólbrekka Sent fundargerðir af fundum til foreldra til að halda þeim upplýstum, Með því að beita sér fyrir lengri dvalartíma, þannig að foreldrar geti skilað 8 tíma vinnudegi. Einnig mætti félagið beita sér betur varðandi gjaldtöku sem er hæst á Seltjarnarnesi af öllu höfuðborgarsvæðinu. Foreldrafélagið hefur gert góða hluti, sbr leikskólagjalda hækkun. Einnig skemmtun fyrir börn og foreldra til fyrirmyndar. Takk kærlega fyrir það. Hrós til ykkar. Ég er mjög óupplýst um starf foreldrafélagsins. Ég veit ekki hver er í því, hvernig er kosið í það, hvað það gerir ofl. Mætti auka samskipti við foreldra. Mér finnst foreldrafélagið hafa staðið sig mjög vel í vetur. Þau börðust vel fyrir hagsmunum foreldra þegar gjaldskrá var hækkuð og fundurinn sem haldinn var um sameininguna/leikskólamál var fræðandi. Ég myndi vilja að baráttunni yrði framhaldið. Mér fannst Ásgerður svara mörgum spurningum á fundinum með því að tiltekið atriði væri í skoðun. Rétt væri að fylgja þessum atriðum eftir.
Tillögur að atburðum fyrir börnin
Mánabrekka Leiklist ,söngur, dans og jóga : ) Vinnustaðaferðir til foreldra sem vinna áhugaverð störf fyrir krakka Mætti fá Tónlistarskólann til að halda tónleika sem foreldrar gætu mætt á með börnunum sínum. Fá dýr barnanna í heimsókn þ.e. hunda, ketti, kanínur o.s.frv. Leiksýningar og tónlistarviðburðir eru frábær upplifun fyrir börn. Mánabrekka og foreldrafélagið hefur sinnt því vel. Tillaga tengt atburðum - ekki bjóða upp á nammi á t.d. sumarhátíð. Mörg börn sem borða ekki nammi eða hafa sérstaka nammidaga Húsdýragarðurinn (öruggari en Miðdalur því börnin eru að hlaupa fyrir aftan dýr sem geta sparkað í Miðdal). Ganga með börnin í Seltj.kirkju og fá að skoða hana og heyra í kirkjuklukkunum.
Tillögur að atburðum fyrir börnin
Sólbrekka Fá dýr í heimsókn á lóð leikskólans. Bjóða leikskólum í vesturbæ í heimsókn eiga vina leikskóla. T.d. að fá stutt leikrit eða brúðuleikhúsið inná leikskóla - á leikskólatíma. Bjóða uppá ferð í Húsdýragarðinn.... Heimsókn í Latabæ með foreldrum maximús músikús og íþróttaálfurinn
Comments