1. kafliHöskuldur ~ Jórunn -> Höskuldsstaðir í Dölum Hallgerður langbrók þjófsaugu Hrútur Herjólfsson - > Hrútsstaðir í Dölum H Á L F B R Æ Ð U R
1. kafli
Höskuldur ~ Jórunn -> Höskuldsstaðir í Dölum Hallgerður langbrók þjófsaugu Hrútur Herjólfsson - > Hrútsstaðir í Dölum H Á L F B R Æ Ð U R
2. kafli
Hrútur trúlofast Unni Marðardóttur (auðug, einbirni) - > Heimanfylgja Unnar er um 100 kýrverð. Hrútur heldur til Noregs vegna arfs (u.þ.b. 130 – 140 kýrverð). Unnur skal sitja í festum í 3 ár.
3. kafli
Haraldur gráfeldur, sonur Eiríks blóðaxar og Gunnhildar drottningar, er kóngur í Noregi. Gunnhildur „tekur ástfóstri við“ Hrút – þau eyða hálfum mánuði í rúminu!
4. og 5. kafli
Hrútur fær 2 langskip frá Gunnhildi og 2 frá Haraldi gráfeldi til að elta uppi Sóta víking og endurheimta arfinn sem Sóti stal. Orusta við Sóta og Atla Arnviðarson: Hrútur sigrar að sjálfsögðu og Gunnhildur reddar honum arfinum.
6. kafli
Hrútur vill heim, eftir 2 ár í Noregi. Hrútur lýgur að Gunnhildi um kvennamál sín og hún leggur á hann álög fyrir tiltækið. Brúðkaup Hrúts og Unnar er haldið á Íslandi og er hjónabandið óhamingjusamt frá byrjun.
7. kafli
Unni tekst, í annarri tilraun, að segja föður sínum að hjónabandið hafi aldrei verið fullkomnað. Mörður gígja ráðleggur dóttur sinni hvernig hún skuli segja skilið við Hrút og sleppa burt úr Dölum. Mörður tilkynnir lögskilnað þeirra á Alþingi, eftir þriggja ára hjónaband.
8. kafli
Mörður rukkar Hrút um heimanfylgju Unnar ásamt vöxtum. Hrútur neitar að greiða en býður Merði hólmgöngu, sem hann þiggur ekki. Sveinar gera grín að hjónabandsmálum Hrúts og Unnar en Hrútur bregst höfðinglega við.
9. kafli
Hallgerður Höskuldsdóttir er kvenna fríðust. Þjóstólfur er fóstri hennar, suðureyskur að ætt. Þorvaldur Ósvífursson, á Staðarfelli, biður Hallgerðar og er hún gift honum án þess að hún sé spurð samþykkis.
10. kafli
Hallgerður er ekki ánægð með ráðahaginn og Hrútur varar við þessu hjónabandi. Kynntur er Svanur, móðurbróðir Hallgerðar, sem býr á Vestfjörðum. Brúðkaup Hallgerðar og Þorvaldar er haldið á Höskuldsstöðum.
11. kafli
Þjóstólfur fylgir Hallgerði að Staðarfelli. Hallgerður var stórlynd og „hafði allt í sukki“ svo undir vor er orðið matarlaust á bænum. Hallgerður brigslar Þorvaldi um nísku og hann slær hana í andlitið svo undan blæðir. Þjóstólfur fer eftir Þorvaldi og drepur hann.
12. kafli
Þjóstólfur kemst undan og Hallgerður sendir hann vestur í Bjarnarfjörð til Svans (móðurbróður Hallgerðar). Hallgerður fer heim á Höskuldsstaði og segir tíðindin.
12. kafli, frh.
Ósvífur, faðir Þorvalds, reynir að sækja að Þjóstólfi en Svanur kemur í veg fyrir að þeir komist að Svanshóli, með göldrum. Hrúti er falið að ákveða skaðabætur fyrir víg Þorvalds og lætur hann Höskuld greiða tvöföld manngjöld - > allir sáttir. Þjóstólfi er leyft að koma á Höskuldsstaði.
13. kafli
Glúmur Óleifsson, á Varmalæk í Borgarfirði, biður Hallgerðar. Hrútur ráðleggur eftirfarandi: að Þjóstólfur megi aldrei gista á Varmalæk lengur en þrjár nætur og einungis vera gestkomandi þar; að allir samningar um hjónabandið séu með vitund og vilja Hallgerðar sjálfrar.
14. kafli
Brúðkaup Hallgerðar og Glúms er haldið en hún vill ekki taka við búráðum (heimilishaldi) á Varmalæk. Hjónabandið er hamingjusamt. Hallgerði og Glúmi fæðist dóttirin Þorgerður. Svanur á Svanshóli drukknar í róðri eða gengur í fjallið Kaldbak.
15. kafli
Þjóstólfur er rekinn af Höskuldsstöðum og leitar ásjár hjá Hallgerði á Varmalæk. Glúmur lætur undan og leyfir honum að vera. Þjóstólfur kemur sér illa við flesta og Hallgerður tekur aldrei málstað hans.
16. kafli
Hallgerði og Glúmi verður sundurorða og hann slær til hennar (lauslegur kinnhestur). Þjóstólfur sér þetta en Hallgerður bannar honum að skipta sér af.
17. kafli
Þjóstólfur drepur Glúm. Hallgerður sendir Þjóstólf til Hrúts sem „sér fyrir honum“, þ.e.a.s. drepur hann. Engar bætur eru greiddar því ættmenni Hallgerðar drápu banamann Glúms en Hrútur og Höskuldur gefa bróður Glúms góðar gjafir. Hallgerður flytur í Laugarnes (Reykjavík).
18. – 19. kafli
Eftir andlát Marðar gígju gerist Unnur Marðardóttir mjög eyðslusöm og lendir í fjárhagsvandræðum. Kynntir til sögunnar bræðurnir: Gunnar á Hlíðarenda (ath. vel lýsingu hans), Kolskeggur og Hjörtur.
20. kafli
Kynntur til sögunnar Njáll Þorgeirsson á Bergþórshvoli og Bergþóra Skarphéðinsdóttir, kona hans. (Bróðir Njáls er Holta-Þórir, sem á m.a. soninn Þorgeir skorargeir.) Ath. vel lýsingu á Njáli og Bergþóru!
21. kafli
Unnur Marðardóttir er blönk og biður Gunnar að ná fé sínu af Hrúti. (Unnur og Rannveig, móðir Gunnars, eru bræðradætur.) Gunnar tekur mál Unnar að sér með handsali, lánar Unni fé og hyggst leita ráða hjá Njáli, vini sínum, því Gunnar kann lítið í lögum.
Comments