Newest Viewed Downloaded

Atvinnutengt námÆtlað nemendum 9. og 10. bekkjar grunnskóla sem af einhverjum ástæðum líður ekki vel í skólanum Námsleiði, námsörðugleikar eða erfiðar félagslegar aðstæður sem áhrif hafa á skólagöngu og námsárangur. Verkefninu er ætlað að stuðla að vellíðan nemendanna og gefa þeim tækifæri til þess að sýna hvað í þeim býr utan skólastofunnar. Meginmarkmið Atvinnutengds náms er að bæta líðan nemenda, gefa þeim tækifæri til að vinna með styrkleika sína og bæta sjálfsmynd sína. Verkefnið styður við

Upplýsingafundur 24.ágúst 2011 Hraunbæ 105

Atvinnutengt nám

Ætlað nemendum 9. og 10. bekkjar grunnskóla sem af einhverjum ástæðum líður ekki vel í skólanum Námsleiði, námsörðugleikar eða erfiðar félagslegar aðstæður sem áhrif hafa á skólagöngu og námsárangur. Verkefninu er ætlað að stuðla að vellíðan nemendanna og gefa þeim tækifæri til þess að sýna hvað í þeim býr utan skólastofunnar. Meginmarkmið Atvinnutengds náms er að bæta líðan nemenda, gefa þeim tækifæri til að vinna með styrkleika sína og bæta sjálfsmynd sína. Verkefnið styður við hugmyndina um einstaklingsmiðað nám.

Atvinnutengt nám

Nemendum sem samþykktir hafa verið inn í úrræðið er fundinn starfsstaður inni í skólanum eða fyrir utan hann þar sem þeir skila ákveðnum tímafjölda í vinnu á viku í stað þess að stunda hefðbundið nám inni í skólanum. 1 vinnustund = 1,5 kennslustund. Nemendur eru samþykktir inn í úrræðið af nemendaverndarráði hvers skóla. Tengiliður skóla, tengiliður á vinnustað og verkefnisstjóri mynda teymi um hvern nemanda í úrræðinu. Tengiliður skóla getur verið námsráðgjafi, sérkennari, skólastjórnandi, deildastjóri unglingadeildar eða sérkennslu.

Ábyrgð skóla

Skrá inn nemendur sína í úrræðið í gegnum síðu á netinu. Skráning hefst 1.september. http://www.reykjavik.is/desktopdefault.aspx/tabid-3986/6754_view-4986/ Skólar finna vinnustað eða fela verkefnisstjóra að finna vinnustað. Tengiliðir verkefnisins í skólum skipuleggja vinnutíma nemenda í samráði við vinnustaði. Tengiliður verkefnisins í skólanum heldur utan um mætingu nemandans og tilkynnir vinnustað um veikindi hans auk þess að senda allar slíkar upplýsingar á verkefnisstjóra verkefnisins svo hægt sé að greiða nemanda rétt laun. Reynslan hefur sýnt að fyrirtækin vilja vera sem mest í samskiptum við tengiliði skólanna fremur en óháðan verkefnisstjóra sem hefur takmarkaðar upplýsingar um nemandann. Skólinn er drifkraftur verkefnisins !

Vinnufyrirkomulag

1 – 4 dagar í viku samhliða skólagöngu Tímafjöldi eftir bekkjum Nemandi í 10.bekk má vinna allt að 16 klst á viku. Nemandi í 9.bekk má vinna allt að 12 klst á viku. Nemandi í 8.bekk má vinna allt að 8 klst á viku. Sumir nemendur mæta bara í vinnu einhverja daga og aðrir tvinna saman skóla og vinnu. Sumir nemendur halda áfram í sumarstarfi á sínum vinnustöðum. Laun nemenda 10.bekkur – 486 kr. á tímann. 9.bekkur – 356 kr. á tímann. 8.bekkur – 325 kr á tímann. Enginn veikindaréttur er í Atvinnutengdu námi.

Tengiliður skóla

Umsjónarkennari Nemandi Tengiliður á vinnustað Verkefnisstjóri Atvinnutengds náms Tengiliður á þjónustumiðstöð Nemendaverndarráð skóla kennsluráðgjafi sálfræðingur námsráðgjafi deildarstjóri umsjónarkennari skólastjórnandi Verkefnisstjórn Launadeild Reykjavíkurborgar Verkferlar Atvinnutengds náms

Vinnustaðirnir

Vinnustaður er valinn með tilliti til áhugasviðs nemandans. Um er að ræða bæði einkafyrirtæki og borgarstofnanir. Skólarnir sjálfir hafa verið að koma meir og meir inn sem vinnustaðir fyrir nemendur sína og þá byrja nemendur oft í skólanum í 8. eða 9. bekk og fara svo út á almennan vinnumarkað í 10.bekk. Sumir vinnustaðir hafa það sem hefð að taka inn grunnskólanema í Atvinnutengdu námi á veturna og svo finna skólar og verkefnisstjóri nýja vinnustaði sem vilja taka þátt á hverju ári. Dæmi um störf í fyrirtækjum Leikskólar, í mötuneytum stofnanna, veitingahúsum, tölvuverkstæðum, fjölskyldu- og húsdýragarðinum, á bifreiðaverkstæðum, verslunum o.fl. Dæmi um störf í skólum: Aðstoða á bókasafni, aðstoða húsvörð, aðstoða kennara, vinna í mötuneytum og jafnvel aðstoða í almennra bekkjarkennslu.

Skólaárið 2010-2011

84 nemendur voru skráðir í Atvinnutengt nám skólaárið 2010-11. 69 fengu starfshæfnismat, þ.e. mættu oftar en 5 skipti til vinnu. 25 skólar í Reykjavík tóku þátt í verkefninu. Um 70 fyrirtæki tóku þátt í verkefninu skólaárið 2010-11

Fjöldi nemenda í Atvinnutengdu námi skólaveturinn 2010-2011

Upplýsingar um verkefnisstjóra

Tryggvi Haraldsson tryggvi.haraldsson@reykjavik.is Þjónustumiðstöð Árbæjar og Grafarholts 411-1200 / 411-1214 Farsími: ?

Showing 1 - 10 of 10 items Details

Name: 
upplysingarfund_24.8
Author: 
tryggvih4539
Company: 
N/A
Description: 
Atvinnutengt námÆtlað nemendum 9. og 10. bekkjar grunnskóla sem af einhverjum ástæðum líður ekki vel í skólanum Námsleiði, námsörðugleikar eða erfiðar félagslegar aðstæður sem áhrif hafa á skólagöngu og námsárangur. Verkefninu er ætlað að stuðla að vellíðan nemendanna og gefa þeim tækifæri til þess að sýna hvað í þeim býr utan skólastofunnar. Meginmarkmið Atvinnutengds náms er að bæta líðan nemenda, gefa þeim tækifæri til að vinna með styrkleika sína og bæta sjálfsmynd sína. Verkefnið styður við
Tags: 
sem | nemendur | skóla | tengiliður | vinna | vinnustað | viku | bekk
Created: 
8/22/2011 9:38:13 AM
Slides: 
10
Views: 
3
Downloads: 
0
Rating: 
0


> Comment



Share this presentation
|

Comments

Share this presentation:

|
Sitemap